Umhverfis- og skipulagsnefnd
19. fundur
21. febrúar 2023
kl.
08:15
-
10:30
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Birkir Snær Guðjónsson
aðalmaður
Heimir Snær Gylfason
aðalmaður
Jóhanna Guðný Halldórsdóttir
varamaður
Ingunn Eir Andrésdóttir
varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
umhverfis- og skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði til samþykktar og svör við athugasemdum sem bárust á aulýsingatíma. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur svarað athugasemdum og vísar deiliskipulaginu til samþykktar í bæjarstjórn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda skipulagið til skipulagsstofnunar og í auglýsingu í B tíðindum eftir samþykki bæjarstjórnar.
2.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 13
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Starmýri 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
3.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 6
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Búðareyri 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
4.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðargata 4
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Búðatrgötu 4, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
5.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 15
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Bleiksárhlíð 15, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
6.
Umsókn um lóð Borgarnaust 5
Umsókn um lóð að Borgarnaust 5, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
7.
Umsókn um lóð Blómsturvellir 31
Umsókn um lóð að Blómsturvöllum 31, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að hefja vinnu við grenndarkynningu.
8.
Erindi frá íbúum við Búðaveg 24
Erindi frá íbúum við Búðaveg 34 á Fáskrúðsfirði vegna hávaðamengunar við húsið. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum á að forsendur byggingarleyfis séu brostnar. Fyrir liggur úrbótaáætlun sem gerð var af Eflu að beiðni Loðnuvinnslunar, umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til Loðnuvinnslunar að hefja umsóknarferli fyrir úrbætur strax.
Viðbótarbókun Heimis Snæs Gylfasonar og Ingunnar Eir Andrésdóttir, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Jóhönnu Guðnýar Halldórsdóttir, fulltrúa Fjarðalistans: gerð er alvarleg athugasemd við seinagang HAUST á málinu og samkiptaleysi við umhverfis- og skipulagsnefnd og óskað er eftir betri samskiptum hér eftir í alvarlegum málum sem þessum.
Viðbótarbókun Heimis Snæs Gylfasonar og Ingunnar Eir Andrésdóttir, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Jóhönnu Guðnýar Halldórsdóttir, fulltrúa Fjarðalistans: gerð er alvarleg athugasemd við seinagang HAUST á málinu og samkiptaleysi við umhverfis- og skipulagsnefnd og óskað er eftir betri samskiptum hér eftir í alvarlegum málum sem þessum.
9.
Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði
Vísað frá Bæjarráði til nefndarinnar umsókn ABC bygginga um breytingar á lóðinni að Búðareyri 29 b.
Bæjarráð óskar eftir því við umhverfis- og skipulagsnefnd að málið fari til frekari úrvinnslu áður en það fer til grenndarkynningar og afgreiðslu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera samning er varðar stöðuleyfi til þriggja ára möguleika á endurnýjun fyrir starfsmannabústað við Búðareyri 29b.
Bæjarráð óskar eftir því við umhverfis- og skipulagsnefnd að málið fari til frekari úrvinnslu áður en það fer til grenndarkynningar og afgreiðslu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera samning er varðar stöðuleyfi til þriggja ára möguleika á endurnýjun fyrir starfsmannabústað við Búðareyri 29b.
10.
Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík
Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að skv. almennum skilmálum fyrir landflokkinn íbúðabyggð í aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 er tekið fram:
"Á íbúðarsvæðum er ekki gert ráð fyrir nýjum leyfum fyrir gistingu í flokki II, III og IV skv. rg. 1277/2016".
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að skrifa umsögn þess efnis.
"Á íbúðarsvæðum er ekki gert ráð fyrir nýjum leyfum fyrir gistingu í flokki II, III og IV skv. rg. 1277/2016".
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að skrifa umsögn þess efnis.
11.
Aðalskipulag br. skógrækt
Aðalskipulag Fjarðabyggðar. Breyting á skilmálum landflokksins Landbúnaðarland vegna stærðar á skógrækt. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillöguna á vinnslustigi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.
12.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 2
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Grímseyri 2, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
13.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 4
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Grímseyri 4, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
14.
Vegna söfnunarstöðvar
Erindi frá Íbúasamtökum Fáskrúðsfirðinga vegna söfnunarstöðvar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindið og vísar í niðurstöður 18. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar.