Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

21. fundur
21. mars 2023 kl. 08:15 - 10:00
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður
Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Ingunn Eir Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Strandgata 77B - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2303211
Strandgata 77b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
2.
Nesbakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2303162
Nesbakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi vegna viðbyggingar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum og undirskriftum íbúa í húsinu hefur verið skilað.
3.
Miðstræti 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2303159
Miðstræti 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
4.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59b
Málsnúmer 2302172
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Austurveg 59b, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
5.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 10 Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2303204
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hlíðargötu 10, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
6.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mánagata 9
Málsnúmer 2303169
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Mánagötu 9, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
7.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Nesgata 7 og 7A
Málsnúmer 2303061
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Nesgötu 7 og 7A, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
8.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásgerði 3
Málsnúmer 2303212
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Ásgerði 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
9.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólabrekka 5
Málsnúmer 2303073
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Skólabrekku 5, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
10.
Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður
Málsnúmer 2302212
Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 8, Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti stækkun lóðar en vísar erindinu til umhverfis skipulagsnefndar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulegar breytingar á deiliskipulagi og vísar erindinu í Bæjarráð.
11.
Umsókn um lóð Ystidalur 5
Málsnúmer 2303168
Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Ystadal 5, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
12.
Umsókn um lóð Ystidalur 7
Málsnúmer 2303167
Umsókn um lóð fyrir parhús að Ystadal 7, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
13.
Umsókn um lóð Ystidalur 9
Málsnúmer 2303166
Umsókn um lóð fyrir parhús að Ystadal 9, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
14.
Umsókn um lóð Garðaholt 5
Málsnúmer 2303165
Umsókn um lóð fyrir raðhús að Garðaholti 5, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Umhverfis- og skipulagsnefnd vekur athygli á því að í skilmálum deiliskipulags er gert ráð fyrir tveim hæðum.
15.
Umsókn um lóð Suðurtún 5
Málsnúmer 2303210
Umsókn um lóð fyrir spennistöð að Suðurtúni 5, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
16.
Lausar lóðir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2301128
Afsláttur vegna lausra lóða í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur tekið þá ákvörðum að hafa 75% afslátt af gatnagerðargjöldum á íbúðarhúsalóðum út árið 2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd vill með þessu koma til móts við verðlagsbreytingar og hækkanir á aðföngum og hvetur einstaklinga til frekari uppbyggingar.
17.
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Málsnúmer 2302213
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í uppbyggingu á landgræðsluskógum á Reyðarfirði og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að halda áfram viðræðum við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar.
18.
Strandgata 9b - matjurtagarður
Málsnúmer 2303143
Ósk íbúa Strandgötu 9b, Eskifirði um leyfi fyrir matjurtagarði. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í hugmyndir um matjurtagarð á þessu svæði og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur ekki umboð fyrir styrkveitingum.
19.
Ábending vegna deiliskipulags neðan Búðavegar Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2303126
Ábending íbúa vegna deiliskipulags neðan Búðavegar Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar ábendinguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara erindinu.
20.
Vöktun flóru og fánu í Fólkvöngum Fjarðabyggðar 2022-2025 Áfangaskýrsla 2022
Málsnúmer 2303063
Skýrsla Náttúrustofu Austurlands: Vöktun flóru og fánu í Fólkvöngum Fjarðabyggðar 2022-2025: Áfangaskýrsla 2022. Náttúrustofa óskar eftir að birta skýrslu á vef sínum. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakka kynninguna og veitir Náttúrustofu heimild til að birta skýrsluna.
21.
Deiliskipulag Fagridalur - Eskifirði - íbúðasvæði
Málsnúmer 2303020
Deiliskipulag Fagridalur, Eskifirði. Tillaga 1 og 2 kynntar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu 1 og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að boða til íbúafundar.
22.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lambeyrarbraut 3
Málsnúmer 2303215
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Lambeyrarbraut 3, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
23.
Stækkun lóða við Hjallaleiru
Málsnúmer 2303218
Ósk um óverulega breytingu á deiliskipulagi og stækkun lóða við Hjallaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarráð. Umhverfis- og skipulagsnefnd setur þá kröfu að gerð verði mön innan lóðamarka til austurs innan árs.