Umhverfis- og skipulagsnefnd
23. fundur
18. apríl 2023
kl.
08:15
-
09:30
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir
varaformaður
Birkir Snær Guðjónsson
aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson
aðalmaður
Ingunn Eir Andrésdóttir
varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
umhverfis- og skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Kynning frá formanni Skógræktarfélags Reyðarfjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra teikningu og samning og leggja fyrir að nýju.
2.
Strandgata 98B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Strandgata 98B, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Smiðjustígur 4
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Smiðjustíg 4, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
4.
Umsókn um lóð Litlagerði 6
Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Litlagerði 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Nefndin áréttar að samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir húsi á einni hæð á lóðinni.
5.
Framkvæmdaleyfi Fell skógrækt
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal að undanskyldu svæði neðan vegar, PT 12-17, vegna skilmála landnotkunarflokks um landbúnaðarsvæði: Skógrækt er þó ekki heimil á góðu akuryrkjulandi, nema um skjólbelti sé að ræða, í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
6.
Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK
Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fella byggingarleyfi er varðar hljóðmön við Hafnargötu 36 úr gildi og fara með málið grenndarkynningu.
7.
Númerslausir bílar 2023
Kynning á verkefni er snýr að númerslausum bílum í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
8.
Deiliskipulag Nes- og Bakkagil
Framlagt tilboð frá Landmótun ehf. vegna vinnu við nýtt deiliskipulag að Nes- og Bakkagili Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagt tilboð og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fylgja málinu fast eftir.
9.
Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði
Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við bæjarverkstjóra.
10.
Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt
Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Eyri, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
11.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 13
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melagötu 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.