Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

38. fundur
7. nóvember 2023 kl. 14:30 - 17:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Heimir Snær Gylfason aðalmaður
Jóhanna Guðný Halldórsdóttir varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck umhverfis- og skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
Málsnúmer 2309162
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar að nýju frá bæjarráði gjaldskrá fyrir úrgangsmál. Bæjarráð mun við framlagningu fjárhagsáætlunar 2024 til fyrri umræðu styðjast við fyrri samþykkt bæjarráðs um breytingu gjaldskrár og vísar gjaldskránni til frekari úrvinnslu í umhverfis- og skipulagsnefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrá 2024 með breytingu á fjölda klippa á klippikorti, bætt við flokki fyrir fyrirtæki á úrvinnsluefni og vísar gjaldskrá í bæjarráð.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
Málsnúmer 2305072
Framhaldsumræða um fjárhagsáætlun ársins 2024 frá síðasta fundi. Lagt fram yfirlit yfir tillögu að fjárhagsáætlun 2024 sem þegar hefur verið lögð fram í bæjarstjórn til fyrri umræðua í þeim málaflokkum sem nefndin fer með umsjón á, þ.e. málaflokkum 08 Heilbrigðismál og 09 Skipulagsmál, deildirnar 11310 Fólkvangar og 13210 Landbúnaður auk málaflokks 63 Sorpmiðstöð. Jafnframt er lögð fram tillagan að breytingum á fjárhagsáætlun málaflokks 63 Soprmiðstöðvar sem taka miða af tillögu að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs á árinu 2024 auk tillögu að breytingu á fjárhaghagsáætlun um málaflokk 08 Hreinslætismál sem tekur mið af óbreyttri gjaldskrá milli ára. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar 08, 09, 89, 11-310, 13-210 og í málaflokki 63 sorpmiðstöð fyrir árið 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar starfs- og fjárhagsáætlun 2024 í bæjarráð.
3.
Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024
Málsnúmer 2310115
Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024 til samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024 og vísar erindinu í bæjarráð.
4.
Umsókn um lóð Gilsholt 6, Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2310164
Umsókn um lóð Gilsholt 6, Fáskrúðsfirði fyrir 5 íbúða raðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutun og vísar erindinu í bæjarráð.
5.
Gilsholt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2310156
Gilsholt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir 5 íbúða raðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
6.
Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2302173
Hljóðmön við Hafnargötu 36, krafa nágranna um afturköllun byggingarheimildar og svar byggingarfulltrúa. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að svara erindinu.
7.
Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk
Málsnúmer 2309240
Umsókn um lóð Hafnargata 27, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á lóðinni og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
8.
Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva
Málsnúmer 2310034
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar umhverfis- og skiðualgsnefndar erindi Instavolt um uppsetningu Hraðhlesðlustöðva í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar erindi Instavolt um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð. Nefndin gerir athugasemd við staðsetningu á Breiðdalsvík þar sem um er að ræða lausa byggingarlóð. Einnig telur nefndin að hægt sé að finna heppilegri staðsetningu á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu til umsagnar íbúasamtaka sveitarfélagssins.
9.
Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð
Málsnúmer 2310174
Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókn um framkvæmdaleyfi út frá staðsetningu strengs í gegn um fyrirhugað íbúðarsvæði á Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vera í sambandi við Rarik og óska eftir heppilegri staðsetningu í samræmi við umræður á fundinum. Málið verður lagt fyrir að nýju.
10.
Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Búðarárfoss
Málsnúmer 2310097
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir áfangastaðinn Búðarárfoss. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
11.
Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Streitishvarf
Málsnúmer 2310113
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir áfangastaðinn Streitishvarf. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
12.
Framkvæmdaleyfi til að breyta vatnsrás vegna ofanflóðavarna Nes- og Bakkagil
Málsnúmer 2310186
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi til að breyta vatnsrás vegna ofanflóðavarna Nes- og Bakkagil. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
13.
Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað
Málsnúmer 2311028
Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Nefndin áréttar að enginn kostnaður við framkvæmdina né viðhald hennar verði kostað af sveitarfélaginu.
14.
Framkvæmdaleyfi stækkun á bílastæði við franska grafreitinn í Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2311012
Framkvæmdaleyfi stækkun á bílastæði við franska grafreitinn í Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
15.
Framkvæmdaleyfi endurnýjun á fráveitulögnum
Málsnúmer 2311049
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun á fráveitulögnum Tröllaveg, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hafa verið skilað.
16.
740 Svarthamrar - Óleyfisbyggingar
Málsnúmer 1908047
Að Svarthömrum, Neskaupstað stendur gamall sumarbústaður án samþykkis byggingarfulltrúa. Bréf vegna þessa, þar sem óskað er eftir að sótt verði um leyfi fyrir sumarbústaðnum eða hann tekinn niður, voru send 30.8 og 2.10.2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir eiganda á að sækja um tilskilin leyfi fyrir 30. nóvember. Ef ekki verður brugðist við því samþykkir umhverfis- og skipulagsnefnd að leggja dagsektir, 20.000 kr. pr. dag, á eigendur Svarthamra frá og með 1. desember í samræmi við 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
17.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25
Málsnúmer 2310028
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamningi og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðaleigusamning.
18.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helluvegur 2
Málsnúmer 2311013
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helluvegur 2. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðaleigusamning.
19.
Umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2310124
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir 20 feta gám í Seljateigshjáleigu, við heimkeyrslu, neðan við Stóramel til eins árs með möguleika á framlengingu.
20.
Niðurfelling gjalda á móttökustöð
Málsnúmer 2310135
Ósk um niðurfellingu kostnaðar á gjöldum á móttökustöð vegna ónýts byggingarefnis eftir snjóflóð Neskst. síðastliðinn vetur. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir niðurfellingu kostnaðar á gjöldum á móttökustöð vegna ónýts byggingarefnis eftir snjóflóð Neskst. síðastliðinn vetur. Nefndin hvetur umsækjanda til að flokka byggingarefni eins og kostur er.
Viðhengi
Minnisblað
21.
Til umsagnar 314. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 2310118
Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 314. mál. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
22.
Umsókn um lóð Búðarmelur 5
Málsnúmer 2311046
Umsókn Búðinga ehf um lóð að Búðarmel 5 fyrir 3 íbúðaraðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina. Lóðin er í dag skipulögð fyrir parhús en skv. 44.gr, 3. mgr skipulagslaga er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Umsækjandi er nú þegar með lóð númer 7 og kemur einnig til með að reisa þar 3 íbúða raðhús. Hvorki er lóðin stækkuð eða byggingarmagn hennar aukið. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í bæjarráð.
23.
Umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2311056
Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám uppá á svæði á Reyðarfirði, n.t.t. á haganum norðvestan við æfingasvæði V.Í.F. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fokhætta sé af gámnum. Stöðuleyfi er samþykkt með fyrirvara um að gámurinn verði lagfærður innan eins mánaðar eða 7.12.2023 eða stöðuleyfi fellur úr gildi og gámurinn fjarlægður samstundis á kostnað eiganda.
24.
Búðarmelur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2311061
Umsókn Búðinga ehf. um byggingarleyfi að Búðarmel 5, Reyðarfirði fyrir 3 íbúða raðhúsi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
25.
Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
Málsnúmer 2301174
Fundargerð 175. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.