Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

39. fundur
21. nóvember 2023 kl. 14:30 - 16:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður
Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Heimir Snær Gylfason aðalmaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Opnunartími Móttökustöðva
Málsnúmer 2311135
Tillögur að nýjum opnunartíma mótökustöðva. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu 2 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
2.
Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Málsnúmer 2302021
Umræða um útfærslu á flokkunarílátum við heimili, t.d. 4 tunnu eða körfu. Umhverfis- og skipulagsnefnd stendur við ákvörðun sína um að leita allra leiða til að bæta ekki við fjórðu tunnunni. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir minnisblað um útfærslu á fjórða flokkunaríláti við heimili í Fjarðabyggð.
3.
Umsókn um lóð Blómsturvellir 31 (29)
Málsnúmer 2311068
Umsókn um lóð Blómsturvellir 31. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar úthlutun á lóð við Blómsturvelli 31.
4.
Umsókn um lóð Vallargerði 11-13
Málsnúmer 2311067
Umsókn um lóð Vallargerði 11-13. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.
5.
Umsókn um lóð Nesgata 34
Málsnúmer 2311066
Umsókn um lóð Nesgata 34. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.
6.
Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað
Málsnúmer 2310191
Ungmennaráð vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu að nýrri staðsetningu gangbrautar við Nesgötu 38, Neskaupstað / Heimavist VA. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í að færa gangbraut á öruggari stað. Nefnin leggur til að gangbrautin verði færð ofar, með því er hægt að nýta núverandi göngustíg. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að útfæra gangbraut og leggja nýja tillögu fyrir ungmennaráð.
7.
Ósk um kaup á hundahóteli Kollaleiru
Málsnúmer 2311025
Ósk um kaup á hundahóteli Kollaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í bæjarráð.
8.
Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2302173
Framlagt bréf íbúa við Búðagötu 24 sem varðar byggingu hljóðmannar Loðnuvinnslunnar að Hafnargötu 36. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafði til hliðsjónar aðaluppdrætti þegar hún afgreiddi byggingarleyfi. Nefndin var meðvituð um raunverulega hæð á hljóðmöninni í samræmi við aðaluppdrátt.
Fyrir liggja mælingar frá Eflu dagsett 30.10.2023 og Mannvit 10.11.2023 sem staðfesta rétta hæð í samræmi við aðaluppdrátt.


9.
Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð
Málsnúmer 2310174
Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi að þeim forsemdum gefnum að helgunarsvæði sem nú þegar er til staðar við Stuðlalínu 2 stækki ekki og þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur Rarik til að gera göngustíg samhliða framkvæmdinni í samráði við skipulagsfulltrúa.