Umhverfis- og skipulagsnefnd
9. fundur
11. október 2022
kl.
16:00
-
18:20
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir
varaformaður
Kristinn Þór Jónasson
aðalmaður
Heimir Snær Gylfason
aðalmaður
Jóhanna Guðný Halldórsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Jörgen Sveinn Þorvarðarson
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Gilsárstekkur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Guðnýjar Harðardóttur, dagsett 29.09.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 52m2 viðbyggingu við norðvesturenda núverandi húss á lóð við Gilsárstekks í Breiðdal. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
2.
Stekkjarholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Stranga ehf, dagsett 06.10.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja parhús á lóð við Stekkjarholt 3-5 á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hamarsgötu 15, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
4.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Strandgötu 68, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
5.
Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar
Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir varðandi aðalskipulagsbreytingu er varðar efnistöku vegna Axarvegar. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara Múlaþingi þess efnis.
6.
Nafnabreyting Lækjarmót verður að Lækjamót
Nafnabreyting Lækjarmót verður að Lækjamót. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nafnabreytinguna.
7.
Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.
Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd harmar að ekki hafi verið fylgt eftir áður samþykktu erindi frá áhugahóp um fjölskyldu- og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði. Nefndin vísar erindinu áfram til sviðsstjóra framkvæmdarsviðs með von um góðar viðtökur.
8.
Fjallskilasamþykkt SSA
Framlögð uppfærð tillaga að fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur en stjórn Sambands sveitarfélag á Austurlandi hefur fjallað um framlagðar athugasemdir við fyrri drög.
9.
Órækt við Lækjargil og knattspyrnuvöllinn í Neskaupstað
Órækt við Lækjargil og knattspyrnuvöllinn í Neskaupstað. Erindi frá Sigurði Jenssyni. Umhverfis - og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að svara erindinu og koma með nánari útfærslur fyrir nefndina að nýju.
10.
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.
Umhverfis- og skipulagsnefndin harmar allar breytingar sem verða til þess að sveitarfélög hafi minna skipulagsvald.
Umhverfis- og skipulagsnefndin harmar allar breytingar sem verða til þess að sveitarfélög hafi minna skipulagsvald.
11.
Strandgata 68 Eskifirði
Ingvi Þór sendi inn almenna fyrirspurn 26.09.2022 fyrir hönd Tvíhólma ehf. um að gera íbúðaraðstöðu í hluta af núverandi húsnæði að Strandgötu 68, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í fyrirspurnina og felur starfsmönnum sviðsins að svara umsækjanda.
12.
Upplistun lausra lóða
Upplistun lausra lóða í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar vinnu við upplistun lóða í sveitarfélagi og telur hún geta aukið gagnsæi og upplýsingagildi fyrir íbúa Fjarðabyggðar. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
13.
Umsagnarbeiðni - Stækkun Mjóeyrarhafnar
Umsagnarbeiðni - varðandi 2. áfanga stækkun Mjóeyrarhafnar. Ekki er gerð athugasemd við 2. áfanga stækkun Mjóeyrarhafnar.
14.
Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku
Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku, tillögur Mannvits. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að fá kostnaðaráætlun fyrir tillögu 3. Nefndin felur starfsmönnum sviðsins að vinna málið áfram og leggja fyrir nefnd að nýju.
15.
Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.
Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindi frá UNICEF á Íslandi og mun halda áfram að skapa barnvænar leiðir til þátttöku.
Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindi frá UNICEF á Íslandi og mun halda áfram að skapa barnvænar leiðir til þátttöku.
16.
Meindýravarnir
Meindýravarnir í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir með skipulags- og umhverfisfulltrúa og starfsmanni Heilbrigðiseftirlits Austurlands að fá meindýraeyði til þess að setja upp rottugildrur í Neskaupstað á því svæði sem hann telur best vera. Nefndin lýsir yfir áhyggjum á málefninu og felur starfsmanni að ræða við fyrirtæki í hafnsækinni starfsemi um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn meindýrum sem geta borist með skipum.
17.
Þörungablómi í Reyðarfirði
Svar frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands varðandi þörungablóma í Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar Heilbrigðiseftirliti Austurlands fyrir svarið og lítur svo á að þessu máli sé hér með lokið.
18.
Framkvæmdaleyfi
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdarleyfi vegna lagningar göngustígs ofan á gamla veginn innan við byggðarkjarnann á Stöðvarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
19.
Gjaldskrá hunda og kattahald 2023
Uppfærð gjaldskrá hunda og kattahald 2023, 4,9% hækkun í samræmi við almenna verðlagsþróun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrána.
20.
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023
Uppfærð gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023, 4,9% hækkun í samræmi við almenna verðlagsþróun. Umhvefis- og skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá fyrir sitt leyti.
21.
Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023
Uppfærð gjaldskrá gatnagerðargjöld 2023, 4,9% hækkun í samræmi við almenna verðlagsþróun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrána.