Austurbrú, Búnaðarsamband Austurlands og Eygló bjóða íbúa Austurlands velkomna á fundi víða um fjórðunginn þar sem fjallað verður um varmadælur og aðra valkosti í húshitun, auk þeirra styrkmöguleika sem standa til boða fyrir heimili sem vilja spara orku og lækka rekstrarkostnað. Sérfræðingur frá Umhverfis- og orkustofnun mun halda fræðsluerindi og verkefnastjóri Eyglóar verður einnig með stutta kynningu á varmadælum. Að loknum kynningum verður tími fyrir umræður og spurningar frá fundargestum. Viðburðinn má finna hér: https://fb.me/e/6jom7nuKZ
Hlýtt heimili - fræðsla um varmadælur og styrki
Dags
7. janúar
Kl.
16:00 - 17:30
Staðsetning
Fróðleiksmolinn, Reyðarfirði
Fræðslufundur um varmadælur og aðra valkosti til að draga niður orkukostnað heimila, ásamt kynningu á þeim styrkjamöguleikum sem eru í boði fyrir heimili utan hitaveitusvæða.
