Á sunnudaginn 15. febrúar næstkomandi verður Kata Jóhanness með opna vinnustofu í Þórsmörk. Kata dvelur hjá okkur allan febrúarmánuð. Hún lýkur dvölinni með lokasýningu þar sem verk unnin á rannsóknartíma hennar verða til sýnis.
Kata hefur verið að velta handverkinu fyrir sér, skoðað hlutverk þess í fortíðinni og sett það í samhengi við samtímamyndlist. Í vinnustofunni vinnur hún að tilraunum með fundið efni og útskurð í við. Hún hefur sérstakan áhuga á mörkum myndlistar, skrauts og handverks.
Áhugafólk um handverk er hvatt til að koma í Þórsmörk í kaffi og spjall!
